A A A A A+ a-


Ráðstefnan Þögul þjáning

Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar gegn ofbeldi á heimilum og kynferðislegu ofbeldi  er gert ráð fyrir árlegum fræðsludegi þar sem lögð er áhersla á hlutverk sveitarfélaganna við að aðstoða þolendur heimilisofbeldis og kynferðislegs ofbeldis við að takast á við aðstæður sínar.

Þann 16. apríl síðastliðinn var boðað til sérstaks fræðsludags fyrir félagsmálastjóra og aðra stjórnendur innan félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem sjónum var beint að orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis sem og á hvern hátt félagsþjónustan getur unnið gegn ofbeldinu.
Fræðsludagurinn var haldinn í tengslum við ráðstefnuna "Þögul þjáning" sem er samstarfsverkefni Jafnréttisstofu og Háskólans á Akureyri.  

Á  annað hundrað manns sóttu ráðstefnuna og voru erindi frummælenda mjög fjölbreytt og fræðandi og gáfu greinargóða mynd af afleiðingum kynbundins ofbeldis og hlutverki yfirvalda, stofnana, sérfræðinga og almennings þegar um kynbundið ofbeldi er að ræða.

Sjónum var beint að ofbeldi í nánum samböndum, ofbeldi á meðgöngu og börnum sem verða fyrir og beita aðra ofbeldi eða áreiti. Sérfræðingar af ólíkum sviðum héldu erindin og ber þar að nefna lögfræðinga, sálfræðinga, ljósmæður, nemendur og kennara. Mikil áhersla var lögð á mikilvægi þess að opna umræðuna um þessi mál, auka fræðslu og leita leiða til að sporna við þeirri klámvæðingu sem ýtir undir óeðlilega kynhegðun barna, unglinga og fullorðinna.

Í hádegishléi ráðstefnunnar fór fram fundur þar sem aðgerðaráætlun Akureyrarbæjar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum var kynnt fyrir starfsfólki félagsþjónustunnar í hinum ýmsu sveitarfélögum en aðgerðaáætlunin er fyrsta aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi á sveitarstjórnarstiginu hérlendis. Aðgerðaáætlunin hefur verið í vinnslu síðastliðið ár og lögð var áhersla á að aðilar í félagsþjónustu bæjarins auk sérfræðinga kæmu að gerð hennar. Í aðgerðaáætluninni er lögð mikil áhersla á fræðslu til starfsfólks bæjarins og gerð fræðsluefnis auk þess að kortleggja þessi mál innan bæjarkerfisins.


Kl. 08:30 Afhending ráðstefnugagna og greiðsla þátttökugjalds.

Kl. 09:00 Setning ráðstefnu: Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdarstýra Jafnréttisstofu.

Kl. 09:10 „Sannleikurinn gerir mann frjálsan“ Kynferðislegt ofbeldi gegn drengjum: 
Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, MS í heilbrigðisvísindum, doktorsnemi í                      Lýðheilsuvísindum við HÍ.
 
Kl. 09:40 Maður, kona, barn: Reynsla kvenna af heimilisofbeldi á meðgöngu: 
Ástþóra Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og meistaranemi við HA.

Kl. 10:10 Er ástæða til að spyrja um ofbeldi á meðgöngu? 
Sigríður Sía Jónsdóttir, ljósmóðir MS, lektor við HA og aðjúnkt við HÍ.

Kl. 10:40 Kaffi

Kl. 11:00 Meðferðarúrræði fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis: 
Dr.Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur, Áfallamiðstöð Landspítala.

Kl. 11.30 Ofbeldi í nánum samböndum frá sjónarhóli kvenna og þolenda: Áhersla á  ferli         niðurbrotsins   Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við HA

Kl. 12:30 Hádegi

Kl. 13:20 Ofbeldi í nánum samböndum, niðurstöður rannsóknar á gögnum: Kvennaathvarfsins
Elva Dögg Ásud. Kristinsdóttir ML nemi í lögfræði við HR.

Kl. 13:50 Ungir gerendur, kynning á meðferðarúrræðum
Anna Kristín Newton, réttarsálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun.

Kl. 14:20 Kynferðislegt ofbeldi, meðferð gerenda
Kristján Már Magnússon, sálfræðingur

Kl. 14:50 Kaffi

Kl. 15:10 Vændi og mansal á Íslandi, dómur í máli Catalina Mikue Ncogo: 
Hulda María Stefánsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá embætti Ríkissaksóknara.

Kl. 15.40 „Því ekki að segja frá því sem gerðist?“ Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur í 
refsirétti og afbrotafræði við lagadeild HR fjallar um kynferðisbrot gegn börnum.

Kl.16:10 Ráðstefnulok 


Erindi á ráðstefnunni:

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu  Opnunarávarp

Dr. Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur  Meðferðarúrræði fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis

Elva Dögg Ásu-og Kristinsdóttir, ML nemi í lögfræði við HR Fremjendur ofbeldis í nánum samböndum

Hulda María Stefánsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá embætti ríkissaksóknara  Vændi og mansal

Ástþóra Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og meistaranemi við HA. Maður, kona, barn: Reynsla kvenna af heimilisofbeldi á meðgöngu

Anna Kristín Newton,réttarsálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun  Ungir gerendur, kynning á meðferðarúrræðum

Svala Ísfeld Ólafsdóttir, sérfræðingur við lagadeild HR Kynferðisbrot gegn börnum

Jafnréttisdagatal
Fyrri mánuðurseptember 2010Næsti mánuður
þrmifilasu
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Afmælisráðstefna Jafnréttisstofu
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10