A A A A A+ a-


Hlutfall kynjanna í sveitarstjórnum


Hlutfall kvenna í sveitarstjórnum á Íslandi hefur aukist hægt og bítandi síðastliðna hálfa öld og eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar eru konur rúmur þriðjungur sveitarstjórnarmanna. Á sama tíma hefur sveitarfélögum í landinu fækkað verulega og þau stækkað.


Kynjahlutföll í upphafi kjörtímabilsins 2006-2010 

Konur í sveitarstjórnum voru 189 eftir kosningarnar 2006, eða 36% og karlar 340 eða 64%. Í fimm sveitarfélögum var engin kona kjörin í sveitarstjórn. Konur voru í meirihluta í 11 sveitarstjórnum eftir kosningarnar, en höfðu verið í meirihluta í 10 sveitarfélögum fyrir kosningar.



Hvernig á að lesa kortið? Sveitarfélög með jafna kynjaskiptingu (40%-60%) eru lituð græn, en þau sem eru með mjög ójafna kynjaskiptingu (0%-29%) eru rauð. Sveitarfélögin sem eru gul sýna hvar hallar á annað kynið á bilinu 30-39%.




Kynjahlutföll í lok kjörtímabilsins 2002-2006

Fyrir nýafstaðnar kosningarnar voru kjörnir sveitarstjórnarmenn í landinu eru alls 628, þar af 429 karlar, eða 68%, og 199 konur, eða 32%. Oddvitar í sveitarstjórnum voru 98, þar af voru karlar 73 og konur 25. Konur voru í meirihluta sveitarstjórnarmanna í tíu sveitarfélögum á landinu en í sjö sveitarfélögum var engin kona meðal sveitarstjórnarmanna.




Hvernig á að lesa kortið? Sveitarfélög með jafna kynjaskiptingu (40%-60%) eru lituð græn, en þau sem eru með mjög ójafna kynjaskiptingu (0%-29%) eru rauð. Sveitarfélögin sem eru gul sýna hvar hallar á annað kynið á bilinu 30–39%.



Stærð sveitarfélaga og landfræðileg lega þeirra virðist hafa áhrif kynjahlutföll í sveitarstjórnum.

  • Í sveitarfélögum með fleiri en 1.000 íbúa eru konur um 35% fulltrúa í sveitarstjórnum.
  • Í sveitarfélögum með færri en 500 íbúa eru konur aftur á móti um 29% kjörinna fulltrúa.
  • Hlutfall kvenna í sveitarstjórnum er hæst á höfuðborgarsvæðinu þar sem konur eru 43% kjörinna fulltrúa.

 


Stjórnir, nefndir og ráð sveitarfélaganna

Fyrir nýafstaðnar kosningarnar voru sveitarfélögin landinu eru alls 98. Félagsmálaráðuneytið og Jafnréttisstofa gerðu úttekt á kynjaskiptingu í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum sveitarfélaganna. 58% sveitarfélaga svöruðu fyrirspurninni en í þeim búa 91,5% íbúa landsins og gefur þetta því ágæta mynd af stöðu mála.

Af þeim sem svöruðu voru samtals 4048 fulltrúar í stjórnum, ráðum og nefndum á vegum sveitarfélaganna. Þar af 1549 konur, eða 38,3% og 2499 karlar, eða 61,7%.



Hvernig á að lesa kortið? Sveitarfélög með jafna kynjaskiptingu (40%-60%) eru lituð græn, en þau sem eru með mjög ójafna kynjaskiptingu (0%-29%) eru rauð. Sveitarfélögin sem eru gul sýna hvar hallar á annað kynið á bilinu 30–39%. Grátt gefur til kynna að sveitarfélagið hafi ekki svarað fyrirspurninni.

  • Konur eru meirihluti fulltrúa í 4 sveitarfélögum á landinu.
  • 2 sveitarfélög eru gul vegna of lítillar þátttöku karla.
  • Í 3 sveitarfélögum er kynjaskiptingin nákvæmlega jöfn en 18 eru innan 40%-60%.
  • Þar sem kynjaskiptingin er ójöfnust eru konur 16,7% fulltrúanna.
  • Lægsta hlutfall karla er 29,2%.



Jafnréttisdagatal
Fyrri mánuðurseptember 2010Næsti mánuður
þrmifilasu
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Afmælisráðstefna Jafnréttisstofu
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10