Jöfn framtíð fyrir stráka og stelpur, Reyndu þekkingu þína er heimasíða með upplýsingar og góðar hugmyndir fyrir kynjameðvitaðar leiðbeiningar varðandi menntun og störf fyrir stráka og stúlkur.
Tilgangurinn er að foreldrar, kennarar og ráðgjafar, sem eiga að ráðleggja ungmennum varðandi menntun og störf, geti hér fundið efni til umhugsunar og innblásturs.
Íslenska menntakerfið og vinnumarkaðurinn eru mjög kynjaskipt. Þetta hefur í för með sér:
- Að kynið verður afgerandi þáttur í vali á menntun og störfum frekar en hæfileikar og langanir.
- Að margir karlar og margar konur vinna eingöngu með fólki af sama kyni.
- Að reynsla, þekking og hæfileikar beggja kynja nýtast ekki til fulls á öllum sviðum.
- Að kynjaskipting vinnumarkaðarins er meginástæða mismunandi atvinnutekna karla og kvenna.
- Að það er flöskuháls á einu sviði á sama tíma og atvinnuleysi ríkir á öðru sviði.
Vilt þú sem foreldri, kennari eða ráðgjafi aðstoða ungmenni við að öðlast framtíð undir merkjum jafnréttis?