Jafnrétti í framkvæmd
Námskeið um jafnréttisstarf, gerð jafnréttisáætlunar
og fjölskylduvæna vinnumenningu
Jafnrétti á vinnustað er forsenda þess að allir starfsmenn nái að njóta sín í starfi. Til þess að ná fram jafnrétti kynjanna þarf samstillt átak margra aðila. Því er mikilvægt að sem flestir kynni sér jafnréttismál og þær aðferðir sem notaðar eru til að vinna að auknu jafnrétti.
Jafnréttisstofa býður upp á námskeiðið Jafnrétti í framkvæmd. Á námskeiðinu er fjallað um stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, jafnréttislöggjöfina og fjölskylduvæna vinnumenningu. Einnig er fjallað um það hvers vegna jafnréttisáætlanir eru mikilvægar og hvernig hægt er að setja skýr markmið og fylgja þeim eftir. Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu um jafnréttismál og kynna aðferðir sem notaðar eru til að koma á jafnrétti, ásamt því að auðvelda vinnu við endurskoðun jafnréttisáætlana og framkvæmd þeirra.
Námskeiðið er ætlað fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum, en í jafnréttislögunum (10. gr.) er kveðið á um að hver sveitarstjórn skuli skipa 3-5 manna jafnréttisnefnd sem eigi að vinna að jafnréttismálum. Jafnréttisnefnd er ætlað að hafa umsjón með gerð jafnréttisáætlunar fyrir sveitarstjórnina til fjögurra ára, en áætlunina skal leggja fram ekki síðar en ári eftir kosningar. Samkvæmt sömu lögum (13. gr.) ber atvinnurekendum og stéttarfélögum að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði og ber atvinnurekendum sérstaklega að jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækis síns eða stofnunar. Þar sem sveitarfélög eru á meðal stærstu atvinnurekenda landsins eiga þau atriði sem vísa til vinnumarkaðarins einnig við um þau.
Námskeiðin eru skipulögð eftir óskum. Nánari upplýsingar má fá í síma 460 6200 eða í gegnum tölvupóst.
Lesefni:
Hvað er jafnréttisáætlun?
Leiðbeiningar við gerð jafnréttisáætlunar (2008)
Leiðbeiningar við gerð
Samþætting - ný leið til jafnréttis kynjannaSveigjanleiki á vinnustað í tíu skrefum (2001)
Fræðsluefni verkefnisins Hið gullna jafnvægi