A A A A A+ a-


Kynbundið ofbeldi og áreitni

Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er eitt af hlutverkum Jafnréttisstofu að vinna gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni. Atvinnurekendur og yfirmenn stofnana og félagasamtaka skulu samkvæmt sömu lögum gera sérstakar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og skjólstæðingar verði fyrir kynbundinni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, stofnun, í félagsstarfi og í skólum.

Kynbundið ofbeldi
Lögin skilgreina kynbundið ofbeldi sem ofbeldi á grundvelli kynferðis sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs, kynferðislegs eða sálræns skaða eða þjáninga þolenda. Einnig teljast hótanir um slíkt ofbeldi, þvingun eða handahófskennd svipting frelsis á grundvelli kynferðis, bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi, til kynbundins ofbeldis.
Hvar fæ ég aðstoð vegna kynferðisofbeldis?

Kynferðisleg áreitni
Til kynferðislegs áreitis telst hvers kyns ósanngjörn eða móðgandi kynferðisleg hegðun, sem er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að skýrt sé gefið í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt atvik getur talið kynferðisleg áreitni, ef það er alvarlegt.
Hvað er kynferðisleg áreitni og hvað get ég gert ef ég verð fyrir henni?

Kynbundin áreitni
Í jafnréttislögunum sem samþykkt voru í febrúar 2008 var kynbundin áreitni í fyrsta sinn gerð ólögleg í íslenskum lögum. Kynbundin áreitni er hvers kyns ósanngjörn eða móðgandi hegðun, sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Eitt atvik getur talist kynbundin áreitni, ef það er alvarlegt.
Hvað geta vinnuveitendur gert til þess að koma í veg fyrir kynferðislega og kynbundna áreitni?

Jafnréttisdagatal
Fyrri mánuðurseptember 2010Næsti mánuður
þrmifilasu
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Afmælisráðstefna Jafnréttisstofu
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10