A A A A A+ a-


Fréttir / Góð þátttaka í hátíðardagskrá og samstöðu á Akureyri
11.12.2009 14:41
Prenta Senda

Fjölmenni var á hátíðardagskrá í tilefni af lokadegi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og degi Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna á Akureyri í gær.

Meðal þeirra sem fluttu erindi á hátíðardagskránni var Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar "Á mannamáli" en Þórdís var í vikunni tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir þessa bók sem fjallar um kynbundið ofbeldi.
 
Sigrún Stefánsdóttir, formaður félagsmálaráðs Akureyrarbæjar kynnti fyrstu aðgerðaáætlun bæjarins gegn heimilis- og kynferðisofbeldi og Kristín Ástgeirsdóttir,framkvæmdastýra Jafnréttisstofu flutti erindi um Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna í tilefni þess að þann 18. desember n.k. verður hann 30 ára.
 
Nemendur í MA tóku virkan þátt í dagskránni, en nemendur í 2. bekk hafa unnið verkefni í tengslum við 16 daga átakið.

Að erindum loknum var haldið í kyndlagöngu niður á Ráðshústorg þar sem u.þ.b. 130 manns tóku höndum saman í samstöðu gegn kynferðisofbeldi. Á Ráðhústorgi var sungið saman og höfðu veitingahús, kaffihús og bakarí í bænum ákveðið að styðja átakið með því að framreiða súpu, kakó og kökur á torginu.



  

















Jafnréttisdagatal
Fyrri mánuðurjúlí 2010Næsti mánuður
þrmifilasu
28
29
30
15 ár frá fyrsta kvennahlaupinu á Íslandi
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
40 ár frá fyrsta opinbera kvennaleik í knattspyrnu
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
100 ár frá fyrstu íþróttakeppni kvenna á Íslandi
1
2
3
4
5
6
7
8