Kynbundið ofbeldi

Kynbundið ofbeldi er eitt útbreiddasta vandamál í heiminum, það á sér margar birtingarmyndir og hefur víðtækar afleiðingar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt. Afleiðingarnar geta verið líkamlegar, andlegar og efnahagslegar og þær geta markað líf einstaklinga fyrir lífstíð. 

Eitt af hlutverkum Jafnréttisstofu er að vinna að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni og kynferðislegri áreitni í samstarfi við önnur stjórnvöld og samtök sem sinna slíkum forvörnum sérstaklega.

Hér til hliðar er hægt að finna ýmsar upplýsingar er tengjast kynbundu ofbeldi, til að mynda:

  • Aðstoð og úrræði
  • Netnámskeið fyrir fagfólk 
  • Myndbönd með reynslusögum
  • Upplýsingar um Instanbúlsamninginn

Tengt efni:  
Kynbundið ofbeldi, kynferðisleg áreitni og kynbundin áreitni á vinnustað.

Orðskýringar