Netnámskeið fyrir fagfólk

Hér að neðan er að finna netnámskeið. Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu fagfólks um land allt á heimilisofbeldi og auðvelda svör við spurningum, til að mynda: Hvernig berum við kennsl á þolendur og gerendur? Hvernig skal bregðast við? Hvaða úrræði eru fyrir hendi á Íslandi? Hverju þarf að huga að við vinnslu á málum er varða fatlað fólk, barnshafandi einstaklinga, fólk af erlendum uppruna, hinsegin fólk og einstaklinga af öðrum minnihlutahópum?

Námskeiðið samanstendur af 13 myndböndum með fyrirlestrum fagfólks sem starfar í nánum tengslum við fólk sem orðið hefur fyrir ofbeldi í nánum samböndum.

Myndböndin er tilvalið að nota sem fræðslu fyrir starfsfólk stofnana, félagasamtaka og annarra. Þau er einnig hægt að nota sem hluta af ráðstefnum, námskeiðum, kennslu í framhaldsskólum og á háskólasstigi. Þau eru opin öllum til nýtingar að kostnaðarlausu.

 

1. Freydís Freysteinsdóttir, dósent í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, fjallar um ofbeldi í nánum samböndum út frá fræðilegum kenningum félagsráðgjafarinnar.


2. Alda Hrönn Jóhannesdóttir
, yfirlögfræðingur lögreglunnar á Suðurnesjum, fjallar um hlutverk og verkefni lögreglu á vettvangi og eftirvinnslu í heimilisofbeldismálum.


3. Auður Magnúsdóttir, Elín Klara Bender og Kjell Hymer
, starfsfólk heimilisofbeldisteymis barnaverndar Kópavogs. Þau fjalla um vinnslu barnaverndar í heimilisofbeldismálum og hlutverk félagsþjónustu sveitarfélaga á vettvangi og við vinnslu heimilisofbeldismála.


4. Hrönn Stefánsdóttir
, hjúkrunarfræðingur bráðadeildar, fjallar um verklag við móttöku þolenda heimilisofbeldis á bráðamóttöku heilbrigðisstofnana.


5. Ástþóra Kristinsdóttir
, sérfræðiljósmóðir, fjallar um heimilisofbeldi á meðgöngu út frá orsökum og afleiðingum. Ástþóra fer til að mynda yfir tíðni, áhættuhópa, hvernig hægt er að bera kennsl á þungaða þolendur heimilisofbeldis.


6. Ragna Björg Guðbrandsdóttir
, teymisstjóri Bjarkarhlíðar - miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, kynnir hér starfsemi og verkefni miðstöðvarinnar.


7. Andrés Ragnarsson
, sálfræðingur hjá Heimilisfriði, segir frá meðferð sem þau bjóða upp á fyrir karla og konur sem beita ofbeldi í nánum samböndum.


8. Eiríkur Smith
, réttindagæslumaður fatlaðra, fjallar um hlutverk og verkefni réttindagæslu í heimilisofbeldismálum.


9. Sigþrúður Guðmundsdóttir
, framkvæmdastýra Samtaka um Kvennaathvarf, segir frá starfsemi athvarfsins og mikilvægi þess sem úrræði fyrir þolendur í heimilisofbeldismálum.


10. Nichole Leigh Mosty
, verkefnastjóri hjá Women in Iceland, kynnir hér úrræði fyrir konur af erlendum uppruna. Hún fjallar einnig um mikilvægi þess að taka tillit til menningarmunar og sérstöðu innflytjenda í vinnu með heimilisofbeldismál.


11. Valgerður Jónsdóttir
, verkefnastjóri hjá Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar, fjallar um hinsegin fólk og heimilisofbeldi. Valgerður segir frá hvernig hægt er að bæta þjónustu við þolendur og gerendur með því að innleiða hinsegin sjónarmið í þjónustu. Bækling Reykavíkurborgar um hinsegin fólk og heimilisofbeldi má finna hér.


12. Tómas Ingi Adolfsson
, verkefnastjóri Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar, segir frá þeirri vinnu sem Reykjavíkurborg hefur farið í um málefni fatlaðs fólks og heimilisofbeldis. Mikið hefur verið gert til að auka þekkingu á málum fatlaðs fólks til að auka við þau þjónustu og bæta þar með verkefni Reykjavíkurborgar Saman gegn ofbeldi.


13. Þóra Kemp
er deildarstjóri skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Á þjónustumiðstöðvum borgarinnar hefur farið fram kerfisbundin skimun fyrir ofbeldi til að gera þjónustufulltrúum í félagsþjónustu kleift að bera kennsl á þolendur og gerendur í ofbeldismálum og bjóða þeim viðeigandi þjónustu. Þóra segir hér frá þeim spurningum sem lagðar eru fyrir þjónustuaðila borgarinnar og hvernig til hefur tekist með skimunina.