10. NORRÆNA RÁÐSTEFNAN UM MÁL OG KYN

10. norræna ráðstefnan um mál og kyn verður haldin í Háskólanum á Akureyri dagana 20.-21. október 2017. Ráðstefna þessi er nú haldin í fyrsta sinn á Íslandi en hún er einn helsti vettvangur norrænna fræðimanna og -kvenna til fræðilegrar umræðu á þessu sviði rannsókna. Ráðstefnan á rætur sínar innan málvísinda og hefur þannig einkum höfðað til þeirra sem fást með einum eða öðrum hætti við mál og kyn innan ramma félagslegra málvísinda, orðræðu- og/eða samtalsgreiningar, mállýskufræða, málsögu eða annarra greina málvísinda, en hún er þó ekki síður opin fræðafólki sem nálgast þetta efni frá sjónarhóli félagsfræði, kynjafræði, bókmenntafræði, menntunarfræði og fleiri greina.
Aðalfyrirlesarar:

  • Helga Hilmisdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum: Gender and Personal Pronouns in Icelandic Debates and Conversations
  • Jón Ingvar Kjaran, Háskóla Íslands: “Fag, dude, dyke, fat or hot”. Word prevalence among high school students in terms of gender/sexual stereotypes
  • Kristina Fjelkestam, Stockholms universitet, Svíþjóð: "How I Learned to Love the Bomb": Peirce and Feminist Semiotics
  • Stina Ericsson, Linnéuniversitetet, Svíþjóð: Sustaining and Challenging Gender and Sexuality Norms:Cis, Hetero, and Family Normativities in Children's Interactions

Erindi: Gert er ráð fyrir að erindi taki 20 mínútur í flutningi og síðan gefast 10 mínútur til umræðna.


Útdrættir: Vinsamlegast sendið inn útdrætti (hámark 300 orð) fyrir 30. maí 2017.


Senda inn útdrátt


Tillögur að málstofum: Sendist fyrir 30 maí til finnurf[hjá]unak.is

Skráning:  Opnað verður fyrir skráningar 3. apríl. 

Mál: Erindin skulu flutt á dönsku, norsku, sænsku eða ensku.

Undirbúningsnefnd: Andrea Hjálmsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Finnur Friðriksson, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Margrét Jóhannsdóttir

Tengiliður: Varðandi nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Finn Friðriksson, dósent við kennaradeild; finnurf[hjá]unak.is 


Sjá einnig:

http://www.rha.is/is/radstefnur/mal-og-kyn

http://www.rha.is/en/conferences/nordiska-konferensen-om-spr-k-och-kon