Aðgerðaráætlun gegn mansali

Í nýrri aðgerðaáætlun gegn mansali, sem ríkisstjórn Íslands samþykkti í gær, eru lagðar til aðgerðir sem miða að því að sækja gerendur til saka, auka aðstoð við þolendur og tryggja vernd þeirra. Þá stendur til að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert.

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti á blaðamannafundi í gær aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali sem ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum sama dag.

Ráðherra fagnar aðgerðaáætluninni og segir „að með henni sé langþráðum áfanga náð í baráttunni gegn mansali á Íslandi. Mansal sé eitt andstyggilegasta form skipulagðar alþjóðlegrar glæpastarfsemi og miklu skiptir að koma lögum yfir þá sem það stunda og veita fórnarlömbum þess vernd og aðstoð. Skilaboð stjórnvalda eru skýr, hér verður mansal ekki liðið.“

Aðgerðaáætlun stjórnvalda er ætlað að efla baráttuna gegn mansali á Íslandi með ýmsu móti. Í henni er miðað að því að fullgilda alþjóðlega samninga um alþjóðlega glæpastarfsemi og mansal sem íslensk stjórnvöld hafa undirritað. Tryggja á að fórnarlömbum mansals, þar á meðal börnum, sé veitt aukin aðstoð, öruggt skjól og vernd með því meðal annars að setja á fót sérfræðiteymi sem hefur yfirumsjón yfir málaflokknum. Lagt verður fram frumvarp sem tryggir fórnarlömbum mansals tímabundið dvalarleyfi á meðan þau gera upp hug sinn um framtíðardvalarstað. Á þeim tíma verður fórnarlömbunum tryggt öruggt skjól og fjárhagsleg og félagsleg aðstoð.

Lagðar eru til aðgerðir sem miða að því að sækja gerendur til saka, auka aðstoð við þolendur og tryggja vernd þeirra. Til stendur að breyta almennum hegningarlögum þannig að kaup á vændi verði gert refsivert. Einnig á að girða fyrir undanþágumöguleika í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald fyrir nektarstaði þannig að lögin banni alfarið starfsemi nektarstaða. Þá verða siðareglur settar fyrir Stjórnarráðið og opinberar stofnanir sem fela í sér skýlaust bann við kaupum á kynlífsþjónustu. 

Markmið áætlunarinnar eru í stuttu máli að:

  • Fullgilda alþjóðasáttmála er varða mansal og aðlaga íslenska löggjöf.
  • Samhæfa innlent samstarf gegn mansali og koma á fót formlegri yfirumsjón með málaflokknum.
  • Viðeigandi fagstéttir og starfsfólk stjórnvalda fái fræðslu um mansal. Efla á greiningaraðferðir og aðstoð við fórnarlömb.
  • Þolendum mansals verði veitt nauðsynleg heilbrigðisþjónusta og sálgæsla, viðeigandi stuðningur og vernd. Veita á aðstoð til að tryggja örugga endurkomu til heimalands.
  • Gerendur í mansalsmálum verði sóttir til saka.
  • Vinna gegn eftirspurn á vændis- og klámmarkaði með því að auka eftirlit með vændisstarfsemi og koma lögum yfir þá sem stuðla að, skipuleggja eða hafa ábata af henni.
  • Fræðsla um mansal verði efld fyrir fagstéttir og starfsfólk stjórnvalda.
  • Íslensk stjórnvöld vinni markvisst að því á alþjóðavettvangi að koma í veg fyrir mansal.

Vinna við gerð aðgerðaáætlunarinnar hófst eftir að ríkisstjórnin samþykkti þann 7. desember 2007 að ráðast í gerð slíkrar áætlunar að tillögu félags- og tryggingamálaráðherra og dómsmálaráðherra. Aðgerðaáætlunin gildir til ársloka 2012. Hana skal endurskoða tveimur árum eftir samþykkt hennar að undangengnu mat á árangri.

Aðgerðaráætlun gegn mansali