Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi 10 ára

Í tilefni af afmælinu verður boðið upp á málþingið Segðu frá! föstudaginn 13. apríl.

Málþingið verður haldið í Hafnarvitanum sem er staðsettur við Eimskip á Akureyri kl. 16.00 og þar koma fram Sigrún Sigurðardóttir frá Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi, Guðrún Ebba Ólafsdóttir frá Drekaslóð, Thelma Ásdísardóttir frá Drekaslóð, Sigríður Björnsdóttir frá Blátt Áfram, Anna María Hjálmarsdóttir frá Aflinu, og Jóhanna G Birnudóttir frá Aflinu. 
Fundarstjórn verður í höndum Ívars Helgasonar.