Ályktanir landsfundar jafnréttisnefnda

Landsfundur jafnréttisnefnda var haldinn á Ísafirði dagana 10. til 11. september síðastliðinn. Á fundinn mætti á fimmta tug sveitastjórnarmanna og starfsmanna sveitarfélaganna ásamt áhugafólki af svæðinu. Þema fundarins var tvíþætt þar sem annarsvegar var fjallað um konur og þátttöku í sveitarstjórnum hinsvegar var fjallað um jafnréttisstarf sveitarfélaganna með sérstaka áherslu á Evrópusáttmála um jafna stöðu karla og kvenna í sveitarstjórnum og héruðum. Að lokum sendi fundurinn frá sér eftirfarandi ályktanir:


Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga skorar á stjórnmálaflokka og önnur framboð að tryggja jöfn hlutföll kynjanna í efstu sætum á framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga vorið 2010. Það er á ábyrgð þeirra sem bjóða fram lista við kosningar að jafna hlutdeild kynja við ákvarðanatöku í stjórnmálum.

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga skorar á öll sveitarfélög að undirrita og hrinda í framkvæmd ,,Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og héruðum“. Sáttmálinn kveður meðal annars á um aðgerðir sem sveitarfélögin geta tileinkað sér án þess að það feli í sér aukin fjárútlát. Erfið fjárhagsstaða sveitarfélaga þarf því ekki að leiða til frestunar á aðgerðum í jafnréttismálum.

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga skorar á alþingsmenn að skoða ítarlega hvaða áhrif samþykkt þess frumvarps um persónukjör sem nú liggur fyrir Alþingi, hefði á möguleika til að jafna stöðu kynjanna á þingi og í sveitarstjórnum.