Ályktun landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga

Árlegur landsfundur jafnréttisnefnda var haldinn í Reykjavík dagana 17.-18. febrúar. Landsfundurinn samþykkti ályktun þess efnis að karlar og konur þyrftu að eiga jafnan hlut í stefnumótun á sveitarstjórnarstiginu. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar má nálgast erindi sem haldin voru á landsfundinum og lesa ályktun landsfundarins í heild sinni.