Bæklingurinn Konur og karlar 2013 kominn út


Jafnréttisstofa gefur út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi 2013 í samstarfi við við Hagstofu Íslands og velferðarráðuneytið.  Um er að ræða samantekt á helstu tölum og hlutfall kynjanna í ýmsum málaflokkum. Í bæklingnum er meðal annars að finna upplýsingar um stöðu kynjanna á vinnumarkaði, í menntakerfinu og í áhrifastöðum, ásamt upplýsingum um mannfjölda, fjölskyldur og fæðingarorlof. Bæklingurinn veitir ákveðna yfirsýn yfir stöðu jafnréttismála á Íslandi og er hann einnig gefinn út á ensku.
Bæklinginn er hægt að nálgast í heilu lagi á pdf-formi, bæði í íslensku og  ensku. Einnig er hægt að panta eintök hjá Jafnréttisstofu jafnretti@jafnretti.is