Dagbækur frá Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

Nú stendur yfir fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York. Fundurinn er að þessu sinni tileinkaður tíu ára afmæli Peking-fundarins, og er með stærra sniði. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi, og Guðrún Jónsdóttir frá Stígamótum halda úti vefdagbókum á meðan þær eru á fundinum. Þá má lesa ræðu félagsmálaráðherra á fundinum á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins.