Drekkt af sundlaugarverðinum

Fimmtudaginn 29. apríl heldur Anna Pála Sverrisdóttir, lögfræðingur frá Háskóla Íslands, fyrirlestur er nefnist „Drekkt af sundlaugarverðinum – kynferðisofbeldi af hálfu friðargæsluliða“. Fyrirlesturinn verður haldinn í Odda, stofu 101, kl. 12.15-13.15Í fyrirlestrinum fjallar Anna Pála um kynferðisofbeldi friðargæsluliða gagnvart konum og börnum sem þeim er ætlað að vernda. Ekki eru mörg ár síðan að slíkt ofbeldi var opinberlega viðurkennt af Sameinuðu þjóðunum en síðan þá hefur verið leitað ýmissa leiða til að taka á því.

Anna Pála spyr hver sé réttur kvenna og barna á friðargæslusvæðum gagnvart kynferðisofbeldi friðargæsluliða. Í því samhengi verður leitast við að svara spurningum um hvaða reglur gilda undir slíkum kringumstæðum og hvernig þeim er framfylgt, hvort og þá hvernig menn eru dregnir til ábyrgðar og hvernig réttarkerfið snýr að þolendum ofbeldisins. Útgangspunkturinn er sá að ef alþjóðasamfélagið tekur að sér að stuðla að friði og öryggi á átakasvæðum, sé lágmark að gera kröfu um að reglur þess – þjóðarétturinn – nái utan um glæpi í tengslum við friðargæsluna.

Öll velkomin!


Fyrirlesturinn er á vegum Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands