Drögum tjöldin frá!

Jafnréttisstofa, Velferðarráðuneytið, Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd við HÍ og Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi við HA standa fyrir ráðstefnu og fræðsludegi um kynbundið ofbeldi. Sjónum verður beint að kynbundnu ofbeldi sem alvarlegu heilbrigðisvandamáli sem mikilvægt er að vinna bug á. Ráðstefnan fer fram í Öskju í Háskóla Íslands þann 1. júní nk.Dagskrá

13:00- 13:15 Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra setur ráðstefnuna

13:15- 13:35 Elísabet Karlsdóttir, verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofnun í
                   barna- og fjölskylduvernd : Niðurstöður rannsókna og hvað
                   svo?

13:35- 13:55 Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri: 
                   Ofbeldi, konur og mannréttindi

13:55- 14:15 Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og
                   Fangelsismálastofnun en starfar sjálfstætt við mat og
                   meðferð ungra gerenda kynferðisbrota : Börn og unglingar
                   sem sýna skaðlega kynhegðun

14:15- 14:35 Kaffi

14:35- 14:55 Magnús Ólason, læknir á Reykjalundi: Konur, verkir og
                   ofbeldi

14:55- 15:15 Ástþóra Kristinsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarstjóri í
                   Heilsugæslunni Hvammi í Kópavogi: Áhrif heimilisofbeldis á
                   barnshafandi konur, fóstur og börn þeirra.

15:20- 15:40 Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands:
                   Notkun klínískra leiðbeininga við að greina ofbeldi gegn
                   konum í nánum samböndum

15:40-16:00 Umræður

Ráðstefnan fer fram í Öskju í Háskóla Íslands þann 1. júní nk.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis en þátttakendur eru beðnir
að skrá sig á: jafnretti@jafnretti.is