Eiga Íslendingar Norðurlandamet í kynferðisbrotum?

Eiga Íslendingar Norðurlandamet í kynferðisbrotum? Er körlum líka nauðgað á Íslandi? Af hverju eru 7 af hverjum 10 kærum vegna kynferðisbrota felldar niður? Þetta er meðal þeirra spurninga sem varpað er fram í bókinni Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur sem kemur út hjá Forlaginu í dag.
Í bókinni er fjallað um eitt hljóðlátasta samfélagsmein okkar tíma, kynbundið ofbeldi. Segir þar að glæpir af því tagi kosti samfélagið á annan milljarð á hverju ári auk þess langvarandi sársauka og skaða sem brotaþolarnir glíma við, jafnvel allt sitt líf.

Í kynningu frá útgefanda segir:

Umfang þessara brota er gífurlegt. Samkvæmt niðurstöðum íslenskrar rannsóknar má ætla að fimmta hver stúlka á Íslandi sé misnotuð fyrir 18 ára aldur og tíundi hver drengur. Fæstir brotamannanna gjalda þó fyrir verk sín. Að sama skapi eru talsvert fleiri Íslendingar beittir kynferðisofbeldi á fullorðinsárum en í nágrannalöndum okkar. Á undanförnum árum hafa þær raddir orðið sífellt háværari í samfélaginu að rétta verði hlut þolenda kynferðisbrota innan íslenska dómskerfisins og þar er m.a. barist fyrir þyngri refsingum og sanngjarnari málsmeðferð.

Í bókinni Á mannamáli fjallar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir af einurð um afbrotin, umræðuna, dómskerfið og ekki síst staðreyndirnar – á hátt sem allir skilja. Í bókinni eru sögur af sigrum og ósigrum, þar er vitnað til á sjöunda tug núlifandi Íslendinga; til dómara, hjúkrunarfræðinga, barna, þingmanna, lögfræðinga, sálfræðinga, kennara, brotaþola og blaðamanna en í samhljómi þeirra kristallast skýrt: Við verðum að gera betur.

Svona bók hefur aldrei komið út áður hérlendis. Þórdís Elva safnar saman gífurlegu magni upplýsinga sem ekki liggur á lausu – og hún veltir við hverjum steini í leit að leiðum, von og framtíðarsýn. Bókin hennar Á mannamáli er mikilvægt lóð á vogarskálarnar og sönnun þess að við getum breytt umræðunni, lögunum og bætt hlutskipti brotaþola á Íslandi.