Er körlum illa við bleika gúmmíhanska?

Jafnréttisstofa hefur síðustu ár verið þátttakandi í nokkrum samevrópskum rannsóknaverkefnum, sem beinst hafa að stöðu karla sérstaklega og hinu flókna samspili fjölskyldulífs og atvinnulífs. Á hádegisfundi þann 28. mars næstkomandi fjallar Ingólfur V. Gíslason um stöðu, viðhorf og vilja íslenskra karla eins og hún birtist í niðurstöðum þessara verkefna.


Er körlum illa við bleika gúmmíhanska? Þarf að þvinga þá til fæðingarorlofs? Eru þeir samanbitnir, tilfinningasljóir aular eða umhyggjusamir feður í klemmu kynjahlutverka? Eru fyrirtæki hindrun í vegi þátttöku feðra í umhyggjustörfum fjölskyldunnar?

Fundurinn verður haldinn í Borgum við Norðurslóð á Akureyri og er opinn öllum að kostnaðarlausu. Hefst fundurinn í anddyri Borga kl. 12 og verður súpa í boði fyrir fundargesti. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að tilkynna komu sína til Jafnréttisstofu í síma 460 6200 eða í tölvupósti jafnretti@jafnretti.is

Nánari upplýsingar veitir Ingólfur V. Gíslason
í síma 460 6200 eða í tölvupósti ingolfur@jafnretti.is

Fréttatilkynning