Er þetta allt að koma?

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8. mars verður boðað til hádegisfundar á Akureyri þar sem rætt verður um stöðu kvenna og karla á vinnumarkaði, launajafnrétti og aðgerðir sem geta stuðlað að jafnrétti kynjanna.  Fundurinn fer fram á hótel KEA frá kl. 12-13:30.
Á hádegisfundi Jafnréttisstofu, ASÍ, KÍ, BHM, BSRB og Akureyrarbæjar verða flutt þrjú erindi.  Kristín Ástgeirsdóttir fjallar um launamun kynjanna en í ár eru 50 ár frá setningu laga um launajöfnuð kvenna og karla. Katrín Björg Ríkarðsdóttir kynnir aðgerðir Akureyrarbæjar til að afnema kynbunið launamisrétti og hvernig nýtt verklag getur tryggt góðan árangur og Katrín Anna Guðmundsdóttir flytur erindi um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð á tímum niðurskurðar.

Dagskrá fundarins