Eru íþróttir leikvangur ofbeldis? - vinnum gegn því

Ráðstefna um ofbeldi í íþróttum, valdasamband þjálfara og iðkenda, stöðuna í dag og þau úrræði sem eru í boði, verður haldin miðvikudaginn 30. janúar frá kl. 10:30 til 17:30 í Háskólanum í Reykjavík og er hluti af dagskrá Reykjavíkurleikanna.

Erlendir og íslenskir fyrirlesarar munu deila reynslu sinni, sögum og fræðum. Bakgrunnur fyrirlesara er mjög fjölbreyttur allt frá fræðimönnum sem hafa rannsakað málefnið um árabil til forsvarsmanna í íþróttahreyfingunni sem vinna að forvörnum og fræðslu og þolenda af báðum kynjum sem segja sína sögu.
Einnig verður boðið verður upp á þrjár vinnustofur um málefnið fimmtudaginn 31. janúar í íþróttamiðstöðinni í Laugardal frá kl. 10 til 12 þar sem áhersla verður lögð á greiningu og viðbrögð, samvinnu að öruggara umhverfi og öflugri forvarnir.

Það eru Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og ólympíusamband Íslands, Reykjavíkurborg, Ungmennafélag Íslands, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Háskólinn í Reykjavík sem standa að ráðstefnunni og málstofunum.

Dagskrá og nánari upplýsingar eru að finna á rig.is og miðasala er á tix.is.