Feðradagur 12. nóvember

Ríkistjórnin samþykkti þann annan júní, tillögu Jóns Kristjánssonar félagsmálaráðherra um að annar sunnudagur í nóvember ár hvert verði helgaður feðrum og tekinn upp í Almanak Háskólans.
Farið er að fyrirmynd Norðurlandanna en þau heiðra feður þennan sama dag. Í ár verður því 12. nóvember nk. helgaður feðrum á Íslandi en annar sunnudagur maímánaðar hefur til margra ára verið helgaður mæðrum víða um heim.