Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna. Nýleg íslensk rannsókn Creditinfo sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best.

Rannsókn Creditinfo var unnin tímabilið febrúar til mars á þessu ári en markmið hennar er að skoða þátttöku kvenna í íslensku atvinnulífi út frá raungögnum þar sem konur eru við stjórn eða með aðra beina aðkomu.  Rannsóknin sýnir samanburð þessara fyrirtækja miðað við samsvarandi skoðun gagna þar sem karlmenn reka fyrirtæki, sitja í stjórn eða hafa beina aðkomu að fyrirtækjarekstrinum.  Einnig var skoðaður samanburður þeirra fyrirtækja þar sem bæði kyn hafa beina aðkomu að rekstrinum, t.d. með stjórnarsetu.  Úrtak í rannsókninni voru öll fyrirtæki á Íslandi.

Samtök atvinnulífsins hafa skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs verði ekki undir 40% árið 2013. Síðastliðið vor skrifuðu Samtök atvinnulífsins undir samstarfssamning við FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands um að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs. Fulltrúar stjórnmálaflokka á Alþingi styðja samninginn en CreditInfo mun mæla árangur verkefnisins árlega. 

Á síðu Samataka atvinnulífsins má nálgast lista yfir öflugar rekstarkonur ásamt hvatningarbréfi SA, FKA og Viðskiptaráðs sem sent hefur verið til fjölda aðila í íslensku viðskiptalífiað undanförnu. 


Rannsókn CreditInfo