Fræðslufundur Jafnréttisstofu í Árborg

Jafnréttisstofa verður í Árborg, nánar tiltekið á Selfossi mánudaginn 27. maí og boðar til opins fundar á Hótel Selfossi í hádeginu með íbúum á Suðurlandi, sveitarstjórnarfólki, forstöðumönnum stofnana og fyrirtækja.

Á fundinum kynnir Jón Fannar Kolbeinsson, lögfræðingur Jafnréttisstofu hlutverk stofunnar og skyldur sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja samkvæmt:

  • Lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008
  • Lögum um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna nr. 85/2018  og
  • Lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr. 86/2018 sem leggja bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar.

Lögin um jafna meðferð tóku gildi í september 2018 en þau kalla á fræðslu um efni þeirra og gildissvið og gefst hér gott tækifæri til að setja sig vel inn í þessi nýju lög.

Einnig verður Evrópuverkefnið ´Break´ kynnt, en það er samstarfsverkefni jafnréttisstofnanna á Íslandi, í Eistlandi og Litháen um afnám staðalmynda í skólastarfi.

Fundurinn fer fram frá kl.  12:00-13:00 og í boði verður súpa, brauð og kaffi  

Skráning er æskileg og fer fram hér.

 

 Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu