Grunnnámskeið Tabú um mannréttindi, fordóma og margþætta mismunun

Fyrir fatlað og langveikt fólk af öllum kynjum. Grunnnámskeið Tabú er fyrir fatlað og langveikt fólk af öllum kynjum. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig okkur líður þegar réttindi okkar eru brotin vegna þess að við erum langveik og/eða fötluð og mögulega einnig vegna annarra þátta, t.d. af því erum hinsegin, af erlendum uppruna, konur eða kynsegin.

Á námskeiðinu viljum við að þáttakendur geti talað um tilfinningar sínar og reynslu án þess að vera hrædd um hvað öðrum finnst og án þess að verða fyrir fordómum. Við viljum líka að þátttakendur fái meira hugrekki til þess að segja hvað þeim finnst, vera baráttufólk og breyta samfélaginu.
Við leggjum áherslu á að engin manneskja er of mikið eða of lítið fötluð/langveik til þess að taka þátt í námskeiðinu.

Tímabil: 27. september-6. desember 2017
Staður og tími: Í Hafnarfirði, miðvikudögum kl. 19:00-22:00.
Námskeiðsverð: Námskeiðsgjöld eru valkvæð en viðmiðunargjald er 20.000 kr.
Umsjón: Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
Skráningu líkur 1. september og fer hún fram hér: http://tabu.is/skraning/

Auglýsing

Myndlýsing: Á myndinni er auglýsing um grunnnámskeið Tabú. Efst til vinstri er logó Tabú og til hægri er titill námskeiðsins. Þar fyrir neðan er lýsing á námskeiðinu og upplýsingar um það (sami texti og hér að ofan). Þar fyrir neðan er mynd af umsjónarkonum. Að lokum er hlekkur á skráningarsíðu námskeiðs.