Grunnskólanemum gefið jafnréttisdagatal

Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hitti 12 ára nemendur í Langholtsskóla á föstudag og afhenti þeim eintak af Jafnréttisdagatali sem ráðuneytið útbjó ásamt Jafnréttisstofu, Kópavogsbæ og Fljótsdalshéraði.Allar 12 ára bekkjardeildir á landinu fá dagatalið í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir jafnrétti og friði þann 8. mars sl.

Félags- og tryggingamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra jafnréttismála, vill með þessu minna á mikilvægi þess að jafnrétti og mannréttindi séu virt. Hún hvatti nemendurna í Langholtsskóla til að vera meðvitaða um mikilvægi þessara réttinda og minnti á að þau væru ekki sjálfgefin heldur afrakstur langrar baráttu sem enn ætti langt í land víða um heim.
Hún sagði þeim frá því að 30 ár væru nú liðin frá því að samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gegn konum var samþykktur.