Halla Tómasdóttir hlaut jafnréttisviðurkenningu Kópavogs

Halla Tómasdóttir, annar stofnenda Auðar Capital og starfandi stjórnarformaður, hlýtur jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar árið 2008 fyrir frumkvöðlastarf og gott fordæmi kvenna á öllum aldri. Jafnréttisviðurkenningin var afhent í Kórnum, sal Bókasafns Kópavogs, í lok dagskrár um jafnrétti í Kópavogi til framtíðar sem hófst kl. 16.
Jafnréttisnefnd Kópavogs rökstyður val sitt á Höllu Tómasdóttur með eftirfarandi hætti:

„Halla Tómasdóttir stofnaði fyrirtækið Auði Capital síðasta vetur í samvinnu við Kristínu Pétursdóttur. Auður Capital sérhæfir sig í viðskiptum við fyrirtæki þar sem konur eru í lykilhlutverki enda hafi rannsóknir sýnt að slík fyrirtæki skili meiri arðsemi. Fyrirtækið sér viðskiptatækifæri í þeim þjóðfélagsbreytingum sem felast í bættri menntun kvenna og auknum fjárráðum þeirra.

Halla hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi. Auk stjórnarsetu í ýmsum fyrirtækjum hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, stofnandi og stjórnandi Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík og Auðar í krafti kvenna. Auður í krafti kvenna stóð að ýmsum verkefnum fyrir breiðan hóp kvenna, Einn dag á ári fylgdu dætur mæðrum sínum í vinnuna, haldin voru fjármálanámskeið fyrir konur, frumkvöðlanámskeið sem skiluðu stofnun nýrra fyrirtækja og einnig leiðtogaauður, þar sem komu saman konur sem voru í áhrifastöðum og styrktu tengsl sín.

Halla hóf störf sem mannauðsstjóri hjá Íslenska útvarpsfélaginu þegar hún flutti aftur til Íslands eftir langa dvöl í Bandaríkjunum við nám og störf hjá þekktum stórfyrirtækjum, M&M/Mars og Pepsi Cola.

Námsferill Höllu hófst í Kársnesskóla og þaðan lá leiðin í Þinghólsskóla líkt og annarra vesturbæinga. Halla fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna og eftir stúdentspróf hélt hún aftur þangað til að nema viðskiptafræði og mannauðsstjórnun. Halla hefur undanfarin ár verið með annan fótinn í Bretlandi vegna doktorsnáms síns.

Halla hefur verið Kópavogsbúi frá unga aldri með hléum þegar hún hefur dvalið erlendis. Jafnréttisnefnd Kópavogsbæjar er stolt að veita henni jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar árið 2008 fyrir frumkvöðlastörf hennar og þá góðu fyrirmynd sem hún er konum á öllum aldri.“