Hátíðardagskrá í Ketilhúsi

Fjölmennt var á hátíðarsamkomu í Ketilhúsi í gær í tilefni 60 afmælis mannrétteindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Jafnréttisstofa, Akureyrarbær og Háskólinn á Akureyri stóðu fyrir hátíðarsamkomunni sem endurspeglaði miklvægi þess að fólk á öllum aldri komi að borðinu þegar mannréttindi eru rædd.

Nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri fluttu tónlistaratriði, Kristín Ástgeirsdóttir, jafnréttisstýra ávarpaði gesti, nemendur úr 8. bekk Lundarskóla lásu valdar greinar úr Mannréttindayfirlýsingunni og nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri kynntu verkefni sín um mannréttindi. Þá ávarpaði Þorlákur Axel Jónsson samkomuna, en hann er formaður Samfélags- og mannréttindaráðs Akureyrar. Sýnd var heimildarmynd um mannréttindi ólíkra hópa sem unnin var af 8. bekk í Lundarskóla.

Margrét Heinreksdóttir , emeritus, flutti ávarp í tilefni dagsins og greindi frá tilurð mannréttindayfirlýsingarinnar og mikilvægi hennar á okkar tímum.
Þrátt fyrir að flestir Íslendingar þekki yfirlýsinguna vel minnti Margrét Heinreksdóttir á þá staðreynd að því fari fjarri að hún hafi náð til alls þorra mannkyns. „Árið 1989 var talið að einungis um 1 % jarðarbúa þekktu hana. Vissulega hefur útbreiðslu hennar fleygt fram síðan, meðal annars með tilkomu heimsnetsins, en mikið vantar enn á vitund fólks um þau réttindi, sem þar er kveðið á um.
Yfirlýsingin hefur verið þýdd á 360 tungumál og er kennd í skólum á öllum stigum víða um heim. Áhrif hennar hafa því orðið víðtæk og afstaða alþjóðasamfélagsins til mannréttinda hefur, þrátt fyrir allt, tekið grundvallarbreytingum á þessum sextíu árum.“

Margrét notaði tækifærið á hátíðarsamkomunni og minntist sérstaklega Eleanor Roosevelt, forsetafrúr Bandaríkjanna sem átti ríkan þátt í hve vel gekk að koma yfirlýsingunni saman. „Hún naut óskoraðrar virðingar og keyrði starfið skipulega áfram af slíkum krafti að rómað var. Hún hafði ótrúlegt vinnuþrek og vílaði ekki fyrir sér að leggja nótt við dag þegar á þurfti að halda. Orðstír hennar á alþjóðavettvangi var og slíkur, að fylgst var með starfinu af miklum áhuga víða um heim. Sjálf lofaði hún aðra fyrir þeirra stóra þátt í starfinu, ekki síst kínverska fulltrúann, sem hafði átt mikilsverðan þátt í að skapa það andrúmsloft sem þurfti til að halda liðinu saman, meðal annars með því að hafa á takteinum fyrir öll tækifæri kínverska málshætti, sem léttu mönnum lundina.“

Í gær lauk 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og vill starfsfólk Jafnréttisstofu þakka öllum þeim sem sýndu átakinu stuðning.