Hatursfull ummæli í tengslum við @Meinlaust

Sérfræðingar Jafnréttisstofu skrifa um viðbrögð við fjórða hluta vitundarvakningarinnar @Meinlaust þar sem tilefni var til að bregðast við hatursfullum ummælum sem fram komu á samfélagsmiðlum.

Greinina má lesa hér fyrir neðan:

Ekki meinlaus heldur hatursfull orðræða

Nýlega hófst fjórði og síðasti hluti vitundarvakningar Jafnréttisstofu, Meinlaust, í samstarfi við félagasamtökin Hennar rödd.

Vitundarvakningunni er að þessu sinni ætlað að sýna birtingarmyndir þeirrar öráreitni sem konur af erlendum uppruna verða fyrir í samfélaginu og fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingunum.

Í vitundarvakningunni eru raunverulegar frásagnir kvenna af erlendum uppruna á Íslandi endursagðar í formi myndasagna. Í sögunum sést lítið brot af þeirri öráreitni sem konurnar verða fyrir, sem getur haft skaðleg, varanleg og hættuleg áhrif.

Viðbrögðin við fjórða hluta Meinlaust hafa ekki látið á sér standa og aldrei hefur borið jafn mikið á hatursorðræðu og fordómum meðan á vitundarvakningunni hefur staðið, sem sýnir mikilvægi umræðunnar og varpar ljósi á vandamálið. Mörg ummælanna við myndasögurnar hafa borið merki haturorðræðu, þau eru niðurlægjandi og meiðandi og hafa jafnvel valdið kvíða og hræðslu.

Rannsóknir hafa sýnt að hatursorðræða getur einnig leitt til þunglyndis, lélegrar sjálfsmyndar, svefnvandamála og einbeitingarskorts. Þau sem verða fyrir henni þurfa jafnvel að draga sig úr aðstæðum vegna álagsins sem henni fylgir, t.d. opinberri umræðu og þátttöku í félagastarfi. Þegar hatursorðræða er endurtekin þá er hún jarðvegur fordóma sem geta varað lengi. Þannig viðhelst útskúfunin, jaðarsetningin og niðurlægingin sem í verstu tilfellunum festir rætur og viðhorfin gagnvart hópunum verða almenn og viðurkennd.

Rétt er að geta þess að mörg viðbragðanna hafa einnig verið mjög góð þar sem fólk hefur speglað sína eigin hegðun í myndunum og opnað augun fyrir því að sumt sem virkar í fyrstu meinlaust, jafnvel hrós eða góðlátleg athugasemd, getur verið skaðlegt fyrir fólk sem tilheyrir jaðarsettum hópum og flokkast sem öráreitni. Þannig getur hver athöfn, umhverfisþáttur eða athugasemd sem er ef til vill ekki stórvægileg ein og sér aukið álagið á hópinn og gert jaðarstöðuna áþreifanlega.

Sá fjöldi neikvæðra viðbragða núna þar sem kynþáttafordómar leka upp á yfirborðið í athugasemdum við myndirnar sem eru byggðar á sönnum frásögnum hafa komið aðstandendum Meinlaust á óvart.

Þegar hatursorðræða verður slík að hún yfirtekur tjáningarfrelsið þá er lýðræðið í hættu. Í góðu og heilbrigðu lýðræðislegu samfélagi þurfa margar fjölbreyttar raddir að heyrast.

Það breytist ekkert ef við lokum augunum fyrir hatri, fordómum og öráreitni. Opnum augun og stöndum saman!