Hefur kynjajafnrétti stuðlað að auknum Evrópusamruna?

Evrópusambandið hefur haft töluverð áhrif á þróun jafnréttismála innan aðildarríkja sinna. Kynjajafnrétti er eitt af grundvallaratriðum Evrópusamrunans og þarf að samþætta það inn í öll stefnumarkmið ESB. Agnès Hubert, sérfræðingur um jafnréttismál innan ESB, heldur erindi á tveim opnum fundum, á Akureyri og í Reykjavík.Fundurinn á Akureyri fer fram á Hótel KEA, fimmtudaginn 20. júní kl. 12.00-13.00.
Fundurinn er haldinn af Evrópustofu og skipulagður í samstarfi við Jafnréttisstofu.

Fundurinn í Reykjavík fer fram í Norræna húsið, föstudaginn 21. júní kl. 12.00-13.00 og er hann haldinn af Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Evrópustofu.

Flestir eru sammála um að ESB hafi haft mikil áhrif á þróun jafnréttismála í aðildarríkjum ESB, en krafan um launajafnrétti hefur verið til staðar í sáttmálum sambandsins frá árinu 1958 og frá þeim tíma hefur ESB markvisst þróað stefnu um jafnréttismál kynjanna.

Agnés Hubert heldur því fram að kynjajafnrétti hafi verið mikilvægur þáttur í samruna Evrópu og sé jafnvel enn mikilvægari nú en áður ef horft er til þeirra efnahagslegu, félagslegu og pólitísku áskorana sem ESB stendur frammi fyrir. Í erindinu verður fjallað um hvernig áhrif frá stofnunum, háskólasamfélaginu og fleiri aðilum hafa mótað stefnu ESB í jafnréttismálum, helstu skref sem hafa verið tekin innan hennar og árangurinn metinn.

Sérfræðingur í jafnréttismálum innan ESB
Agnès Hubert er hagfræðingur og stjórnmálafræðingur og starfar við stefnumótun í Evrópumálum hjá framkvæmdastjórn ESB. Hún hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá Evrópuþinginu og sem blaðamaður með efnahagsmál sem sérsvið.

Fundirnir eru öllum opnir og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.