Hlutfall kvenna í stjórnum lífeyrissjóða eykst um 18,4%

Þann 1. september 2013 tóku gildi lög sem kveða á um að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í stjórnum lífeyrissjóða, einkahlutafélaga, hlutafélaga,  samlagshlutafélaga, opinberra hlutafélaga þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn á ársgrundvelli. 
KPMG hefur undanfarin ár tekið saman upplýsingar um kynjahlutfall stjórnarmanna hjá lífeyrissjóðum. Samanburðurinn leiðir í ljós að heildarhlutfall kvenna í stjórnum lífeyrissjóða er nú 44,4% og hefur aukist um 18,4% prósentustig frá árinu 2010.Töluverðar breytingar hafa átt sér stað í stjórnum lífeyrissjóða þegar núverandi tölur eru bornar saman við upplýsingar um hlutföll kynjanna í september 2012. Í fyrra voru 42% lífeyrissjóða með stjórnir í samræmi við löggjöfina samanborið við 73% lífeyrissjóða núna þegar lögin tóku gildi. Enn eru stjórnir sjö lífeyrissjóða ekki í samræmi við löggjöfina þar sem einn sjóð vantar tvær konur í stjórnina til að uppfylli skilyrði laganna, fjóra sjóði vantar eina konu í stjórnina og tvo sjóði vantar einn karl í stjórnina.

Lögin kveða á um að í hverjum lífeyrissjóði þarf hlutfall hvors kyns að vera að lágmarki 40% þegar stjórnarmenn eru fjórir eða fleiri og ef stjórnarmenn eru þrír eða færri þarf hvort kyn að eiga fulltrúa í stjórn. Fjöldi stjórnarmanna er slétt tala hjá 14 af 26 lífeyrissjóðum (t.d. 6 eða 8 stjórnarmenn) sem leiðir til þess að hlutfall hvors kyns þarf að vera 50% í þeim sjóðum (má ekki fara undir 40%). Það leiðir til þess að þegar allir lífeyrissjóðir eru með stjórnir í samræmi við löggjöfina þá þarf heildarhlutfall kvenna í stjórnum lífeyrissjóða að vera a.m.k. 45,8%.