Hugmyndamarkaður

Samstarfshópurinn ALLAR HEIMSINS KONUR stendur fyrir hugmyndamarkaði föstudaginn 6. mars þar sem kynnt verður sú þjónusta og verkefni sem verið er að vinna að til að  auðvelda aðgang kvenna af erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra að íslensku samfélagi. Hugmyndamarkaðurinn þann 6. mars verður opinn frá kl. 13:00 – 16:00 í sal Mennta- og leikskólasviðs Reykjavíkurborgar við Fríkirkjuveg 1 - gamli Miðbæjarskólinn

Fjölmargar stofnanir og samtök kynna þjónustu sína og verkefni auk þess sem að örkynningar verða haldnar á ýmsum verkefnum. Örkynningarnar standa yfir í ½ tíma klukkan 13:30 og 15:00.

Markaðurinn er ókeypis og öllum opinn; allir sem hafa áhuga á að kynna sér áhugaverð verkefni og þjónustu sem standa konum af erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra til boða eru hjartanlega velkomnir.

Boðið verður upp á léttar veitingar

ALLAR HEIMSINS KONUR