Húsfyllir á hádegisfundi á kvennafrídaginn á Seyðisfirði

Á sjötta tug kvenna sótti hádegisverðarfund á Seyðisfirði sem haldinn var í tilefni kvennafrídagsins þann 24. október sl.. Skipuleggjandi viðburðarins segir enn töluvert óunnið í jafnréttisbaráttunni þótt jafnrétti eigi að vera bundið í lög.„Mér finnst mikilvægt að vekja fólk til umhugsunar um að þótt lögin segi að kynin séu jöfn er samfélagið okkar ekki þannig mótað. Það gætir enn ójafnréttis í hugsunarhætti okkar," segir Sandra Rut Skúladóttir sem skipulagði hádegisverðarfundinn.

Seyðisfjarðarkaupstaður gaf öllum konum sem starfa hjá sveitarfélaginu frí frá klukkan 11:50 og fleiri fyrirtæki og stofnanir fylgdu því fordæmi. Þetta er annað árið í röð sem þetta er gert en Sandra segist hafa ýtt hugmyndinni áfram til að vekja fólk um kynbundinn launamun.

„Lagalega séð er komið á jafnrétti en veruleikinn er ekki þannig. Það eru ýmsar kynjamyndir í samfélagi okkar sem við tökum ekki eftir sem móta hugarfar okkar."


Til að vinna gegn þessum staðalhugmyndum telur Sandra að efla þurfi kynjafræðslu í skólum þannig fyrr verði byrjað að innleiða jafnréttissjónarmið í huga nemenda. Sú fræðsla snýr ekki síst að kennurum.

„Við þurfum að innleiða hugsunina alla leið niður í leikskólana og tryggja að kennararnir séu meðvitaðir, þannig þeir bjóði til dæmis stelpum jafn oft að leika sér með bíla og strákunum og strákunum jafn oft með dúkkur og stelpunum," segir Sandra sem lokið hefur meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræðum.




Fréttin birtist á vefnum: austurfrett.is