Hvert skref skiptir máli - Kvennahlaup 2006

Í dag skrifuðu forsvarsmenn Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ og UNIFEM á Íslandi undir samstarfssamning vegna hlaupsins hinn 10. júní næstkomandi. Í ár er yfirskrift Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ ?Hvert skref skiptir máli". Markmið samstarfs ÍSÍ við UNIFEM á Íslandi er að vekja athygli á starfi UNIFEM í þágu kvenna, sérstaklega í Afganistan, og hvetja íslenskar konur til að sýna samstöðu með mannréttindum kvenna um leið og þær efla eigin heilsu. 50 kr. af hverjum seldum bol mun renna til UNIFEM.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ mun fara fram á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis laugardaginn 10. júní næstkomandi. Þetta er 17. árið sem hlaupið fer fram en árlega taka um 18.000 konur á öllum aldri þátt. Meginmarkmið Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ er að hvetja og styðja konur á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og heilsueflingar. Konur eru hvattar til að vera á iði ekki aðeins þennan eina dag heldur sem flesta aðra daga ársins. Allar konur geta tekið þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á sínum forsendum, óháð aldri og líkamlegri getu.

UNIFEM á Íslandi hvetur félagskonur um allt land til að draga fram hlaupaskóna 10. júní og þær sem búsettar eru erlendis sömuleiðis. Hægt verður að nálgast upplýsingar um hlaupastaði á www.sjova.is og ef ekki verður hlaupið í nágrenninu er konum frjálst að skipuleggja eigin hlaup. Með góðum fyrirvara er hægt að koma bolum til þátttakenda víðast hvar.