Ísland í fyrsta sæti í alþjóðlegri úttekt á kynjajafnrétti

Alþjóðaefnahagsráðið (World Economic Forum) hefur gefið út árlega skýrslu um stöðu kynjajafnréttis í heiminum. Ísland er nú í efsta sæti þessarar úttektar Alþjóðaefnahagsráðsins á jafnrétti kynjanna en þetta er í fjórða árið í röð sem Ísland skipar sér í efsta sæti jafnréttislistans. Lagt er mat á stöðuna á fjórum sviðum, þ.e. út frá aðgengi að heilbrigðis- og félagsþjónustu, aðgengi að menntun, þátttöku í stjórnmálum og efnahagslegri stöðu þar sem horft er til atvinnuþátttöku, launajafnréttis, heildaratvinnutekna og hlutfalls kynja meðal stjórnenda og sérfræðinga.Úttektin er gerð í 135 löndum og eru norðurlandaþjóðirnar sem fyrr í efstu sætum listans. Á eftir Íslandi er Finnland í öðru sæti, Noregur í þriðja og Svíþjóð í því fjórða og má lesa út úr skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins að tæp 20% vanti á til að jafna stöðu kynjanna að fullu meðal þessara þjóða. Í fimmta sæti er Írland, Nýja Sjáland í sjötta sæti og Danmörk í því sjöunda.

Skýrsla Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti 2012