Jafnréttisdagar Háskóla Íslands

Dagana 20.-24. september verða Jafnréttisdagar haldnir í Háskóla Íslands annað árið í röð. Líkt og í fyrra verður dagskráin afar fjölbreytt og verður fjallað um jafnrétti í víðum skilningi og frá mismunandi sjónarhornum. Að dögunum standa fjölmargir aðilar innan Háskólans sem tengjast jafnréttismálum, rannsóknastofnanir, námsbrautir, ýmis hagsmunafélög nemenda, jafnréttisnefndir innan skólans og fleiri aðilar, auk aðila utan skólans. Opnunarviðburðurinn (20/9 kl. 12) verður umræðufundur um karlmennskuímyndir og gagnkynhneigðarhyggju, þar sem þeir Páll Óskar Hjálmtýsson og Ingólfur V. Gíslason munu flytja erindi. Á Jafnréttisdögum verður einnig fjallað um klámvæðingu, einelti, fjölmenningu og fólksflutninga, kvennabaráttu á Íslandi fyrr og nú og táknmál sem fyrsta tungumál, og margt fleira. Þá verða kvikmyndasýningar í samstarfi við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF), leiksýningar og aðrir listviðburðir, ásamt fleiru, en viðburðir fara fram á íslensku, ensku eða táknmáli.

Markmiðið með Jafnréttisdögum er að stuðla að fræðslu og aukinni umræðu og skilningi á jafnréttismálum, innan sem utan háskólasamfélagsins, og vinna að því að gera jafnréttismál sýnilegri. Ókeypis er á alla viðburði Jafnréttisdaga (utan kvikmyndasýninga á vegum RIFF) og aðgangur er öllum heimill.

Dagskrá Jafnréttisdaga er að finna á www.jafnretti.hi.is einnig má finna yfirlit í viðburðadagatalinu hér til hliðar.