Jafnréttisfræðsla hjá Reykjavíkurborg

Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar og Skóla- og frístundasvið með stuðningi Jafnréttisstofu hafa tekið höndum saman um jafnréttisfræðslu fyrir kennara í leik- og grunnskólum og starfsfólk í frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum borgarinnar. 
Fræðslan er mikilvæg í ljósi þess að í nýrri aðalnámskrá grunnskóla er jafnrétti ein af grunnstoðum menntunar. Auk þess er tilgreint í jafnréttislögum, sbr. 23. grein, að á öllum skólastigum skuli nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. sé lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, svo sem fjölskyldu- og atvinnulífi. Einnig segir í sömu grein að kynjasamþættingar skuli gætt við alla stefnumótun og áætlanagerð í skóla- og uppeldisstarfi, þar á meðal íþrótta- og tómstundastarfi.Jafnréttisfræðslan felst í fyrirlestrum og umræðum um jafnrétti á Íslandi á starfsmannafundum frístundaheimila, félagsmiðstöðva og leikskóla og á kennarafundum í grunnskólum. Fyrirlestrunum er ætlað að vera fræðandi en einnig að kveikja áhuga kennara og starfsfólks félagsmiðstöðva og frístundaheimila á málefninu. 

Áherslur á fræðslufundunum eru með mismunandi hætti eftir því hvar fræðslan fer fram. Í grunn- og leikskólum er  vakin athygli á þætti jafnréttis í aðalnámskrá og þeirri skyldu skv. lögum að fræða nemendur um jafnréttismál. Í félagsmiðstöðvum er fjallað um sjálfsmynd, kynhegðun og klámvæðingu. Sýnt er með dæmum hvernig flétta má jafnréttisáherslur inn í kennslu og uppeldisstarf. Kynntur er upplýsingabanki um jafnréttismál og jafnréttisfræðslu þar sem finna má ýmislegt kennslu- og fræðsluefni ásamt hugmyndum að verkefnum um jafnrétti. Upplýsingabankinn er og verður áfram í þróun og eru ábendingar um gott efni inn í hann vel þegnar.