Jafnréttisgátlisti til notkunar við stefnumótunarvinnu

Í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum 2004-2008 var forsætisráðuneytinu falin útgáfa jafnréttisgátlista til notkunar við stefnumótunarvinnu. Jafnréttisgátlistinn er leiðbeinandi spurningalisti sem ætlaður er öllum þeim sem koma að opinberri stefnumótun.Með því að svara spurningunum í upphafi stefnumótunarvinnu má tryggja að hugað sé að því á hvaða hátt stefnumótunin hefur áhrif á jafnrétti kynjanna og vonandi tryggja að jafnréttis sé gætt. Jafnréttisgátlistanum hefur verið dreift til Alþingis, annarra ráðuneyta og sveitarfélaga. Nú er einnig hægt að fá hann á tölvutæku formi.

Gætum jafnréttis
Gætum jafnréttis - jafnréttisgátlisti