Jafnréttiskennitalan 2008

Rannsóknasetur vinnuréttar hefur birt upplýsingar um hlutfall kvenna í stjórnum og meðal æðstu stjórnenda í 120 stærstu fyrirtækjunum á Íslandi fyrir árið 2008. Helstu niðurstöður eru þær að konur skipa 13% stjórnarsæta og eru æðstu stjórnendur (forstjóri eða framkvæmdastjóri) fyrirtækja í 8% tilvika. Hlutfall kvenna meðal æðstu yfirmanna, þ.e. þeirra sem koma næstir í skipuriti á eftir æðsta stjórnanda, er 19%.

Rannsókninni stýrir Elín Blöndal, prófessor, en hún var unnin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst.

Birting upplýsinganna er liður í verkefninu Jafnréttiskennitalan, en samstarfsaðilar þess eru viðskiptaráðuneytið, iðnaðarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Auk þess styrkja Inn-fjárfesting og Baugur group verkefnið árið 2008.

Skýrslan er birt í heild sinni á heimasíðu Háskólans á Bifröst.  Þar eru niðurstöður bornar saman við árið 2007 og eru helstar þær að: 

  • Konur skipa 13% stjórnarsætanna (61 af 467 stjórnarsætum). Árið 2007 var hlutfall þeirra 8%.
  • Í þeim 11 fyrirtækjum á listanum sem skráð eru á aðallista OMX (Kauphallarinnar) skipa konur 6 af 62 stjórnarsætum, þ.e. 10% stjórnarsæta.
  • Í þrettán af 120 stærstu fyrirtækjunum er stjórnarformaðurinn kona. Árið 2007 voru aðeins þrjár konur stjórnarformenn í 100 stærstu fyrirtækjunum.
  • Engin kona er stjórnarformaður í þeim fyrirtækjum á listanum sem skráð eru á aðallista OMX (Kauphallarinnar).
  • Í  8% tilvika er æðsti stjórnandi fyrirtækjanna (forstjóri/framkvæmdastjóri) kona árið 2008, eða í 10 af 120 fyrirtækjum. 
  • Konur eru 19% meðal æðstu yfirmanna fyrirtækjanna (72 konur af 378 æðstu yfirmönnum). Árið 2007 var hlutfall þeirra um 14%.
  • Alls reyndust 38% fyrirtækjanna vera með jafnréttisáætlun í gildi, af þeim fyrirtækjum sem svöruðu þeirri spurningu. Árið 2007 var samsvarandi tala 33%.
  • Engin kona er í stjórn 57% fyrirtækjanna. Árið 2007 voru 71% fyrirtækjanna án konu eða kvenna í stjórn.
  • Konur eru í þriðjungi stjórnarsæta eða meira í samtals 29 fyrirtækjum, en árið 2007 voru fyrirtækin 12. Hlutfallslega svarar þetta til 24% fyrirtækja árið 2008 samanborið við 12% árið 2007.