Jafnréttislög til hvers? Málþing KRFÍ

Í tilefni 101 árs afmælis KRFÍ verður haldið málþing í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur mánudaginn 28. janúar nk. kl. 14:00.  Yfirskriftin er Jafnréttislög til hvers? Áhrif löggjafar á framvindu jafnréttis. Á meðal mælenda verður Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra.

Dagskrá:

Kl.
14:00  Þorbjörg I. Jónsdóttir, formaður KRFÍ flytur ávarp
14:10  Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra
14:20  Ingvar Sverrisson, lögfræðingur Alþýðusamb. Ísl.
14:30  Hranfhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur SA
14:40  Guðjón Bragason, lögfræðingur Samb. ísl. sveitarfél.
14:50  Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur Alþjóðahúss og stjórnarkona KRFÍ
15:00  Umræður
15:45  Veitingar

Fundarstjóri er Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, aðstoðarorkumálastjóri.

Málþingið er öllum opið. Enginn aðgangseyrir.