Jafnréttisrannsóknir við Háskólann á Akureyri

Í byrjun júní stóðu Jafnréttisstofa og Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir málþingi um rannsóknir í jafnréttismálum við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með málþinginu var að kynna rannsóknir í jafnréttismálum. Einnig var fundurinn hugsaður sem vettvangur til þess að ræða og kynna það sem er í gangi í þessum málaflokki.

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, og Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður RHA, lögðu áherslu á mikilvægi þess að efla samstarf á þessum vettvangi. Kristín notaði einnig tækifæri til þess að kynna þær rannsóknir sem eru framundan og þar á meðal nefndi hún rannsóknir um fæðingaorlofið, heimilisofbeldi á Íslandi, kynbundinn launamun og vændi.

Önnur erindi:

Þóroddur Bjarnason prófessor og Ársæll Már Arnarsson lektor, félagsvísinda- og lagadeild HA.
Jafnt hjá báðum? Félagstengsl barna sem búa jafnt hjá báðum foreldrum eftir skilnað í samanburði við aðrar fjölskyldugerðir.

Rachael Lorna Johnstone, lektor, félagsvísinda- og lagadeild, HA
Konur og Skattar á Íslandi

Kristín Aðalsteinsdóttir, deildarforseti Kennaradeildar,
Af hverju eru konur svona duglegar?

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor, Kennaradeild
Goðsagnir og veruleiki um jafnrétti og skólastarf

Hjördís Sigursteinsdóttir, sérfræðingur, RHA
Lífsstíll eða lífsviðurværi?  Félags- og efnahagsleg staða karla og kvenna í dreifbýli

Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur, RHA
Getum við mælt jafnrétti

Anna Elísa Hreiðarsdóttir, sérfræðingur, Skólaþróunarsvið.
Íslenskir Karlleikskólakennarar – þröskuldar í námi og starfi.


Fundarstjóri var Ágúst Þór Árnason.