Jafnréttissjóður Íslands auglýsir eftir umsóknum

Rannís lýsir nú eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði Íslands. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í sjóðinn og er umsóknarfrestur til 3. apríl 2020, kl. 16:00

Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður árið 2015 í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni og rannsóknir sem auka jafnrétti kynjanna í samræmi við þingsályktanir um Jafnréttissjóð Íslands.

Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 milljónir króna á ári, frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020. Úthlutað er úr sjóðnum 19. júní ár hvert.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Jafnréttissjóðs.