Jafnréttisstofa á ferð og flugi - Á Austurlandi

Jafnréttisstofa verður á á Þórshöfn í dag, fimmtudaginn 9. október, og boðar til opins fundar á Bárunni með íbúum Langanesbyggðar, sveitarstjórnarfólki, forstöðumönnum stofnanna og fyrirtækja á svæðinu. Á fundinum sem hefst klukkan 12:00 verður fjallað um skyldur sveitarfélaga og fyrirtækja í jafnréttismálum og staðalmyndir kynjanna.
Jafnréttisstofa verður síðan á Vopnafirði síðar í dag, fimmtudaginn 9. október, og boðar til opins fundar í Kaupvangskaffi með íbúum Vopnafjarðarhrepps, sveitarstjórnarfólki, forstöðumönnum stofnanna og fyrirtækja á svæðinu. Á fundinum sem hefst klukkan 18:00 verður fjallað um skyldur sveitarfélaga og fyrirtækja í jafnréttismálum og staðalmyndir kynjanna.

Jafnréttisstofa verður á Egilsstöðum föstudaginn 10. október og boðar til opins fundar á Hótel Héraði með íbúum Fljótsdalshéraðs, sveitarstjórnarfólki, forstöðumönnum stofnanna og fyrirtækja á svæðinu. Á fundinum sem hefst klukkan 12:00 verður fjallað um skyldur sveitarfélaga og fyrirtækja í jafnréttismálum og staðalmyndir kynjanna.

Jafnréttisstofa verður síðan á Borgarfirði eystri laugardaginn 11. október og boðar til opins súpufundar í Álfakaffi með íbúum Borgarfjarðarhrepps, sveitarstjórnarfólki, forstöðumönnum stofnanna og fyrirtækja á svæðinu. Á fundinum sem hefst klukkan 12:00 verður fjallað um skyldur sveitarfélaga og fyrirtækja í jafnréttismálum og staðalmyndir kynjanna.




Dagskrá Jafnréttisstofu:


Fimmtudagur 9. október

Þórshöfn
12:00 Opinn fundur á Þórshöfn - Báran

Vopnafjörður
16:15Leikskólinn Brekkubær, fræðsla fyrir starfsfólk.
17:00Fundur með jafnréttisnefnd Vopnafjarðarhrepps.
18:00Opinn fundur á Vopnafirði.


Föstudagur 10. október

Seyðisfjörður
08:30Fundur með jafnréttisnefnd Seyðisfjarðar. 

Egilsstaðir
11:00Fundur með jafnréttisnefnd Fljótsdalshéraðs.
12:00Opinn fundur á Egilsstöðum – Hótel Hérað.
14:00Fundur með fulltrúum frá Alcoa Fjarðarál.


Laugardagur 11. október

Borgarfjörður eystri
11:00Fundur með jafnréttisnefnd Borgarfjarðarhrepps. 
12:00Opinn fundur á Borgarfirði eystri - Álfakaffi