Jafnréttisstofa valin Stofnun ársins 2021

Stéttarfélagið Sameyki tilkynnti í gær, 16. mars , um valið á Stofnun ársins 2021 en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu.

Jafnréttisstofa var valin Stofnun ársins í flokki minni stofnana (með færri en 40 starfsmenn) og heldur þar með titlinum frá árinu 2020.

Á listanum yfir allar stofnanir óháð fjölda starfsmanna er Jafnréttisstofa einnig í 1. sæti og fer því upp um tvö sæti frá 2020.

Könnunin náði til um 31 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytisins og gefur mikilvægar upplýsingar um töðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er að hvetja stjórnendur til að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum.

Nánar má lesa um niðurstöðurnar á vefsíðu Sameykis.