Jafnréttisþing í Mosfellsbæ í dag

Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar stendur fyrir jafnréttisþingi sem haldið verður í Hlégarði í Mosfellsbæ í dag, fimmtudaginn 18. september. Þingið hefst kl. 13, en það er haldið í samvinnu við Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands. Þingið er haldið til heiðurs Helgu J. Magnúsdóttur en hún fæddist 18. september 1906 og hefur bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkt að fæðingardagur hennar verði árlegur jafnréttisdagur í bæjarfélaginu.

Á þessu ári eru 50 ár síðan Helga settist fyrst kvenna í stól oddvita í Mosfellsbæ. Hún lét meðal annars málefni kvenna sig varða, var formaður Kvenfélagasambands Gullbringu- og Kjósarsýslu 1948-1966, formaður Kvenfélags Lágafellssóknar 1951-1964, í varastjórn Kvenfélagasambands Íslands 1953 síðan í aðalstjórn þess og formaður 1963-1977.