Jafnréttistorg í Háskólanum á Akureyri

Kennarar við kennaradeild Háskólans á Akureyri hafa undanfarnar vikur staðið fyrir fundaröð um jafnréttismál tengd skólastarfi og mun deildin bjóða upp á þrjú jafnréttistorg í febrúar. Fyrirlestrarnir hafa verið mjög vel sóttir og hafa nemendur og kennarar úr skólum bæjarins hlýtt á og haft gagn og gaman af.Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við kennaradeild HA reið á vaðið miðvikudaginn 23. janúar sl. og flutti erindi sitt: Prúðar prinsessur og svellkaldir sjóræningjar en í því fjallaði hún um áhrif barnaefnis á mótun sjálfsmyndar barna og skilning þeirra á samfélaginu. Hún komst að þeirri niðurstöðu að börn lifi sig inn í sögur og myndir; máti ný hlutverk, læri að setja sig í spor annarra og kynnist hinum ýmsu óskráðu reglum samfélagsins - ekki síst ólíkum hlutverkum kynjanna í barnaefni og bókmenntum. Brynhildur telur að barnaefni verði að vera nútímalegra og forðast beri að viðhalda úreltum staðalmyndum.

Viku seinna, 30. janúar flutti Andrea Hjálmsdóttir, lektor erindi um hugmyndir unglinga um jafnrétti. Andrea greindi frá niðurstöðum nýjustu rannsókna er varða viðhorf 10. bekkinga til jafnréttis og verkaskiptingar kynjanna. Þær gefa til kynna að um stöðnun sé að ræða í hugmyndum unga fólksins til jafnréttismála og að samfélagið þurfi að taka hlutverk sitt í jafnréttisuppeldi mun fastari tökum en verið hefur. Nemendur 10. bekkjar Brekkuskóla fjölmenntu á fyrirlesturinn og settu skemmtilegan svip á áhorfendahópinn, svo margir sóttu fyrirlesturinn að honum var varpað úr hátíðarsal háskólans yfir í nærliggjandi stofu.

Fréttamaður RÚV var á staðnum og ræddi við nokkra nemendur úr Brekkuskóla um jafnréttismál auk þess að ræða við Andreu. Viðtölin voru leikin í Síðdegisútvarpi Rásar 2 og má finna á heimasíðu RÚV hér. Innslagið hefst á tímanum 60:40.

Næstkomandi fimmtudag 7. febrúar mun Kristín Dýrfjörð lektor við kennaradeild HA flytja erindi á jafnréttistorgi undir yfirskriftinni: Jafnréttishugsun í skólum í stofu N-101 milli kl. 12.00-13.00.

Kristín mun fjalla um fylgirit nýrrar aðalnámskráa, rit um jafnrétti sem Þórður Kristinsson framhaldsskólakennari og hún tóku saman. Í því er farið yfir bæði kenningar og hugmyndir um jafnréttismál. Þar er því haldið fram að jafnréttismál séu mannréttindamál og undirstaða lýðræðis og sjálfbærni. Þau snerti allt skólastarf og það sé allra sem vinna í skólum að standa vörð um og efla jafnrétti og jafnréttishugsun . Á torginu verður ritið kynnt, fjallað um þá hugmyndafræði sem þar er lögð til grundvallar og hvernig höfundar sjá ritið nýtast skólafólki. 

Erindin eru aðgengileg á Vefvarpi háskólans