Jafnréttisviðurkenning 2006

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2006. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.
Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða.

Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september n.k. til Jafnréttisráðs, Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri, í síma 460 6200, bréfsíma 460 6201 eða tölvupósti jafnretti@jafnretti.is


Á heimasíðu Jafnréttisráðs má sjá lista yfir þá aðila sem hlotið hafa viðurkenningar ráðsins.