Jafnréttisviðurkenning 2008


Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2008.
Viðurkenningu geta hlotið fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. 

Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða.

Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 14. september n.k. til Jafnréttisráðs, Borgum, 600 Akureyri, í síma 460 6200, bréfsíma 460 6201 eða í tölvupósti  jafnretti@jafnretti.is