Jafnréttisviðurkenning 2010

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2010. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs er þema Jafnréttisráðs árið 2010. Því verður sérstaklega horft til þátta sem kynnu að snerta þemað.

Jafnréttisráð vonast eftir tilnefningum sem víðast að og minnir á nauðsyn þess að vekja athygli á verkum eða aðgerðum í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja þannig til frekari dáða.Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 15. október n.k. til Jafnréttisráðs, Borgum, 600 Akureyri, í síma 460 6200, eða tölvupósti jafnretti[at]jafnretti.is