Jafnréttisviðurkenningin 2014


Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2013. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála.
Í ár stendur til að veita tvær viðurkenningar. Eina til fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunnar og aðra til einstaklings, hóps eða félagasamtaka. Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með. Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Jafnréttisviðurkenningarinnar þarf viðkomandi aðili að vera tilbúinn að taka á móti fulltrúum Jafnréttisráðs veita þeim upplýsingar og svara spurningum. 

Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 13. febrúar 2014 til Jafnréttisráðs. Nánar upplýsingar má lesa HÉR